Halló gúgggú

*gúbbí fiskur*

16.07.2007 21:22:06 / anna

Borg óttans;D

Góðan daginn daginn daginn, sagði gæjinn gæjinn gæjinn þegar sprakk í honum maginn;) heheh ókay neinei djók. Get ekki annað en tekið mína heimsfrægu setningu “halló gúgggú” er fólk ekki farið að sakna hennar? Ég stefni á að koma þessari setningu í sögubækur;) og verð heimsfræg um allan heim? Heimsfræg um allan heim? Haha auðvitað verð ég heimsfræg ef ég verð fræg um allan heim:P Hef tekið þá ákvörðun að byrja hægt og rólega á því að byrja aftur með þessa síðu, verður spennandi hvað ég endist lengi með hana en ætla að prufa:haha: Jæja ég er flutt suður!.. en anda rólega ég kem aftur heim í byrjun septembers þannig ekki örvænta, er samt búin að vera hérna fyrir sunnan í hvað hmm.. 4 vikur yes sir! Var ekki alveg að fíla vinnuna mína fyrst en núna er þetta allt að koma:) allir þarna eru bara æðislegir! Vorum öll bara svolítið feimin en núna er allt rosa gaman.. á hverjum degi gerist alltaf eittthvað skemmtilegt.. til dæmis í dag var strákur gripinn við þjófnað hjá okkur, blessaður strákurinn var bara að stela eitt stykki buxum og viti þið hvernig hann gerði það8|? Klippti þjófavörnina úr og fór í gömlu buxurnar sína yfir hinar nýju, jáhá fólk er skoo orðin slúngið við þetta. En sem betur fer tók Ásgeir verslunarstjórinn eftir honum og gómaði þrjótinn;) Löggan kom og alles, rosa mikið fjör hahah8) Jedúddamía talaði við eina gamla konu í nærri 15 mínútúr í símann í dag:O hún ætlaði að panta buxur úr bæklingnum okkar en neinei síðan þegar ég sagði henni hvernig efni væri í buxunum þá fór hún bara að þræta við mig að þetta væri ekki rétt hjá mér og eitthvað:haha: haha ég hélt á buxunum og var að lesa af miðanum greyið konan:P Ef þið eigið leið hjá Intersport uppá Höfða (í hús Húsgagnahallarinnar) þá endilega kíkjið við og heilsið uppá mig:) Eins og ég sagði áðan þá hef ég það bara fínt hérna í borginni, allir voða æðislegir við mig. Sakna samt fjölskyldunnar minnar heima og vina minna rosalega mikið;** takk stelpur fyrir allar símhringarnar þið eruð æði:) þær björguðu mér alveg!

Bið að heilsa í bæinn, sakna ykkar;*

 

Karlmaðurinn í lífi mínu;* get alltaf treyst á hann, sakna þín Siggi minn;**


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 19:01:46 / anna

Miðvikudagur

Af hverju þarf þetta að vera svona? Af hverju þarf maður að pirrast útí hlutina? Af hverju getur maður ekki bara tekið öllu vel og ekkert vesen? Guð ég hljóma eins og rassálfarnir í Ronníja Ræningjadóttur en þetta er spurning sem ég þarf að spurja mig orðið alltof oft, get alveg sagt ykkur það að pirringur sé búinn að vera í mér síðustu vikur..jaá vikur ekki viku! Fólk á sína slæmu daga og góðu og þarf maður bara að gera gott úr þessum slæmu sem ég auðvitað reyni. Væri ekki bara tilvalið að senda allt fólkið sem færi í taugarnar á manni á eina eyju og leyfa þeim að fara í taugarnar á hvort öðru:haha: haha þessi tilhugsun kætti mig sko sannarlega;D

En jæja hætti þessu væli, hef um svoo mikið að tuða og svoo mikið sem mig langar að skrifa hérna en held það gæti farið fyrir brjóstið á sumum manneskjum. Þannig þeirra vegna neii...
Já bara snjókoma úti á Akureyri, hef ekki litið út núna nýlega en það er búið að snjóa síðan ég veit ekki hvenær. Þurfti að taka trampolínið mitt inn með snöggum snúningum fyrir nokkrum dögum útaf þessum snjó sem ákvað allt í einu að koma. Ekki var ég að óska eftir honum, var allt í lagi að hann kæmi bara rétt fyrir jóli:) Við Arnrún tókum rúnt í vikunni og komum okkur í jólagírinn:haha: tókum gamlagóða jólarúntinn okkar:haha: Kósý kvöld á rúntinum klikkar ekki með þessari elsku;)

Næsta mál á dagskrá...Við Helga mín komnar með síðu:O? jaá þannig þá spyrja bændur sig..mun ég verða með þessu síðu líka? Tjaa ég veit ekki. æihh það verður bara að koma í ljós, þið komist að því fyrr eða síðar;)
Planið í kvöld? hmmm...Helga kemur til mín og vi skal giste sammen;D voða gaman;* gerum kannski e-ð inná síðuna okkar í kvöld aldrei að vita;) kvet ykkur bara til að kíkja á hana http://blog.central.is/kolli_kati 

 

Við stöllurnar:haha:

Good bye people;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 19:59:46 / anna

Miðvikudagur

Góðan daginn góðir hálsar og aðrir líkamspartar:haha: þessi snilldar setning er í boði Ingibjargar;)

Ingibjörg rak mig víst til þessa að blogga þannig, allrætí people I will blogg for you;) hehe. Sit nú hérna í íslensku tíma hjá honum Stefáni, hann er að segja okkur frá því þegar hann prufði hass:haha: gott að segja nemendum sínum frá því hehe. Hann sagðist nú hafa verið lélegur hasshaus, sem mér finnst nú svolítið ótrúlegt miða við hvað hann talar hægt í tíma. Auður var nú að tala við bekkinn um helgina sína og þegar hún var búin að tala í dágóðan tíma þá bara kom þögn...og enginn í bekknum þorði að gera að segja neitt:D haha, hefðuðu átt að lýta á bekkinn og ég alveg orðin eldrauð við að halda hlátrinum inní mér:lol: En síðan bara heyrist í Auði “uhh jaá” hafði bara sokkið inní hugsunina sem hún var að hugsa...gæti hún verið hasshaus? Hmm...það er skoo spurning:O hahha neii hún er nú svoo krúttleg og góð að henni myndi ekki detta það í hug blessuð dúfan:)

Geðveikt langt síðan ég hef bloggað, hef alveg haft nóg að gera á minni könnu! Við að læra? Hmm...tja do you really want me to answer that:D jújú er duglegur námsmaður. Vil nú bara segja ykkur hvað ég er í æðislegum bekk:haha: Voða góður mórall hjá okkur get nú alveg með hreinni samvisku sagt;D can I hear a wúbb wúbb:haha:  Elska líka böðla bekkinn minn hann er skoo algjört æði;) Þannig...jaá er bara mjög ánægð með skólann minn:D er jújú orðin fulltrúi 1. bekkjar í skemmtinefndinni;):haha: skoo mína! Lék í þessu voða fína myndband sem var sýnt í skólanum í gær. Voða gaman, voða mikið fjör hehe.  Fór í jarðfræðiferð með bekknum mínum og tveimur öðrum, það var skoo mikið fjör:haha: skemmti mér skoo konunglega:) http://1f.bloggar.is þetta er síðan sem bekkurinn minn er með;) endilega kíkjið á hana.

Helga?...jaá hún er ekkert búin að koma fyrir í þessu bloggi:O...verð nú að setja hana aðeins hérna inní:D er jaá bara alltaf með henni og elska hana voða mikið;* En ekki eins og þið vissuð þetta ekki;):haha:

Sjáumst úti á víðavangi!

 

 

Hluti af böðla bekknum mínum;D þið eruð skoo algjör æði krakkar:)



 








» 20 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 20:39:06 / anna

Fimmtudagur

Jáá ég að blogga segi þið? Kannski maður ætti að drífa sig í því? Hef nóg annað að gera fyrst ég er byrjuð í þessu blessaða skóla, jaá fólk það er satt. Anna Sif Bergþórsdóttir er orðin opinberlegur MA-ingur. Svolítið skrítið að mæta í skólann og labba þarna inn...hehe en þetta kemst allt í vana hjá manni. Busunin fór bara skemmtilega framm:haha: vorum látin steikjast eins og beikon, syngja söngva, fara í ratleik, labba á sér stað á göngunum, fara í gegnum þrautir á leið í stofurnar, troðast í kosinni og látin dansa uppá sviði:haha: Vorum látin gera margt margt fleira eins og til dæmis allskonar þrautir í ratleiknum! Er með mjög skemmtilegan böðla bekk, hress og skemmtilegur:haha: alveg búin að koma auga á mitt fólk þarna hehe eða það eru bara allir, allir svoo æðislegir;)

Fórum svoo út að borða með böðlabekknum okkar á Bautann á þriðjudaginn og svoo var haldið uppí skóla á busaballið, það var nú allt í lagi svona;D dansaði með 4. bekkjar stelpunum eins og brjálæðingur en hélt bara snemma heim enda alveg dauðþreytt=/ Skóli í gær og í dag:D svoo er bara að koma helgi, ohh það verður ljúft eða svona jaá...er að fara að vinna um helgina en það verður nú eitthvað djamm á minni;) fagna því að vera gengin inní Menntaskólann:haha: djamm djamm djamm.

Búin að vera með Helgu alla daga sem er bara gaman;* elska þessa stelpu! Og líka ykkar;* Þið vitið alveg hverjir þið eruð;) Svoo gaman að vera með Helgu í skóla, gistum bara saman og förum saman í skólann og svoo heim hehe:D  Helga mannstu....hehehhehehhe! heheheh! (hrossahlátur) “ Eeeeaaaahhhh” neii Helga eru þetta frændsystkinin þín:haha:

Blogga aftur sem fyrst;) þegar það fer að minka aðeins hjá manni að gera! Vil minna fólk á bekkjarsíðuna mína  1F.bloggar.is :haha: endilega kíkjið og fylgist með okkur;)

 

hehe ég í mínum fínagalla;)








» 15 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 00:45:44 / anna

Mánudagur

Kvöldið fólk.

 

Jæja Helga komin heim:haha: gleði gleði! Allt komið í gamlafarið aftur sem er bara æðislegt, hehe við Helga saman alla daga;) Fékk æðislegt hálsmen frá henni þegar hún kom heim, sjæsinn svoo flott!  Hehe fór í Fargo í gær fyrir vinnu og keypti mér jájá alveg slatta af fötum:haha: var aðeins að spreða peningunum sem maður er búin að spara hehe. Jájá get alveg sagt að ég hafi verið dugleg að versla..er komin með veikina sem allar konur í fjölskyldunni minni erum með hehe, verslunaróðar;) Fór svoo beint í vinnuna og sýndi stelpunum dressin:D þá datt Helgu allt í einu í hug að fara í Fargo en við vorum í vinnunni! En neinei heheh henni var nú alveg sama, það var ekkert að gera og nóg af stelpum þannig við Helga stukkum í Fargo hahha :haha: jaá var nú svolítið að skrítið að koma þanngað aftur eftir 15 mín stelpan fór nú líka að hlæja þegar hún sá mig heheh:P En Helga keypti sér úlpu eða jakka:) svona bæði, þannig þessi ferð var þess virði og skemmtileg;) Skutluðumst svoo til Dalvíkur með Hófý og Silfá með einhvern unganpilt:P Þurfti nú nokkru sinnu að kíkja smá frammí til að gá hvort allir væru ekki vakandi þar:P Hófý driver dauðans, ég er nú orðin góður keppninautur með það skoo;) vona góðu í akstrinum..getið alveg spurt Hófý eða Helgu um það:) fékk aðeins að taka í kaggann.

 

 

 

Fór í Kjarnaskóg með Helgu, Hófý, Sunnu, Ásrúnu og litlu stelpunum hennar Ásrúnar á sunnudaginn:) Skelltum nokkrum pylsum á grillið einnig kjúklingi, skemmtu okkur konuglega hehe, missti mig í leiktækunum með stelpunum hehe:haha: takk fyrir grillið stelpur;*

Vinnan nátturlega í dag:) hvað annað fólk, svoo bara heim og Helga fór í sína æðislegu ökuferð á trillitæki hahah;D fyrst kom Hófý og tókum góða hringi með henni og svoo kom Ásrún og tókum einnig góða hringi með henni og Bergþóru við fórum í svoo  neistaflug!:haha: hahaha! Mikið fjör mikið gaman hehe. Svoo ætlar Helga að gista hjá mér í kvöld:haha: gaman gaman!

 

Gott ár stelpur:) hehe "koma tímar koma ráð segir máltækið";) hver fattar þetta?

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 22:58:54 / anna

Mánudagur

Góða kvöldið:)

Hef gleðifréttir að færa ykkur...Helga kemur heim eftir 3 daga:haha: sjæsinn heheh tala ekki um neitt annað:P verður svoo gaman þegar hún kemur heim búin að sakna hennar svoo mikið!

En á laugardaginn var Akureyrarvakan og það var nátturlega hreinsnilld:) skemmti mér vel í allastaði! Byrjaði daginn á því að fara að þrífa á SS byggir og fór svoo heim að græja mig í bæinn og búa til mat handa mér. Var nú þvílíkt dugleg og gerði mér bara þetta æðislega salat! Arnrún kom svoo að fá lánaðann bol hjá okkur systrum fyrir kvöldið. Fór síðan að græja mig fyrir kvöldið og svoo komu Ásrún og Hófý að sækja mig;* Hófý elskan átti afmæli þennan dag;* og var því komin með bílpróf kellingin;) Gekk bara mjög vel hjá henni aksturinn bara stolt af henni. Við Ásrún fórum í bæinn að horfa á tónleikana í gilinu, þetta voru þvílíkt flottir tónleikar góðir söngvarar og allt flott í kringum þetta! Var mjög stolt af því að standa þarna og vera Akureyringur;) Fór svoo að rölta í bænum með Sunnu og hittum Hófý þegar hún var loksins búin í baði og fórum í 10-11 og Strax heheh...þurftum að fara í báðar búðirnar:P Héldum svoo heim til Sunnu og þaðan niður í bæ að horfa á tískusýninguna! Hún var nátturlega bara geðveikt, var bara stolt af öllu mínu fólki þarna:haha: Ásrún, Arnrún, Þóra, Sóley og fleiri:) þið voruð geðveikt flott og þetta jaá var bara æðislegt:haha: Algjörar fegurðardrottningar! Fór síðan heim til hans Loga míns í þetta heljarinnar partý nóg af fólki og mikið gaman:D Kannski aðeins of mikið af fólki hehe;) en þetta var bara æðislega gaman:haha: þrátt fyrir e-ð smá vesen sem maður gleymir nú bara. Rölti síðan í bæinn og spjallaði við nóg af fólki þar, síaðn lá leiðin mín bara að hitta Tótu og Eygló og fór að skemmta mér með þeim gellum;)  Þetta var bara mjög skemmtilegt kvöld og þakka öllum sem ég hitti og kynntist fyrir skemmtilegt kvöld:haha:

Síðan var það bara kósý dagur í gær fór í Brynju með Höllu, Kristínu, Söru og Elvu:) síðasta Brynjuferðin okkar Höllu í dágóðan tíma því stelpan er farin suður í skóla..gangi þér æðislega vel elskan mín þar;* lofa að koma í heimsókn til þín.

Svoo á mamma mín afmæli á morgun:haha:  alltaf jafn sæt þessi elska! Til hamingju með afmælið mamma;* hehe sérð þetta nú ekki hérna þannig segi þetta við þig í persónu:D

Bless!

 

 


Gísli og ég hress heima hjá Loga:) smá ekki í fókus:D hehe









» 22 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 18:43:44 / anna

Þriðjudagur

Góðan daginn!

Jæja þá er mín komin heim úr útlandinu hehe. Það var bara fjör skoo hjá mér, skemmti mér konunglega skal ég segja ykkur. Var alveg til í að koma heim en samt líka að vera lengur. Vorum mikið með henni Tinnu hún á heima þarna í Torremolinos þannig maður kynnist vel fólkinu þarna og öllu í kringum þetta allt! Mikið gaman mikið fjör. Var nú næstum einu sinni drukknuð hahah:P..neii segi svona, það var einn daginn svona svaðalegar mikla öldur að fólk átti bara ekki að vera mikið í sjónum en neinei ég, Elva og Tinna auðvitað drifum okkur útí og jaá enduðum nokkru sinnum uppá landi hehe:P...höfðum þá bara farið með öldunum og alveg inní þær og alles heheh þvílíkt baywatch atriði í gangi skoo:D Það voru nú svoo sætir sundlaugaverðir þarna úti að ég var alveg til í að láta þá koma og bjarga mér. Sá nú sæta sundlaugagaurinn minn þurfa að rífa sig úr bolnum og stökkva útí á eftir einni gamalli konu, held hún hafi bara ekkert verið að drukkna heldur bara viljað láta strákinn koma og bjarga sér þessar gömlu konur, þær eru jafn æstar í þessa ungu sætu stráka og við;)

Fór bara strax að vinna þegar ég kom heim því ekki veitir af eftir allt sem ég keypti úti hehe:) ég er komin með verslunarveikina á háustigi.

Kom heim á fimmtudagiskvöldinu og fór út og hitti Arnrúnu og Þóru:) hitti líka Hófý, Ásrúnu, Gísley, Heiðdísi og fleiri. Föstudaginn bara man ég ekki hvað ég gerði hehehhehe:P...fór heim til Örnu eftir vinnu og þar var slatti af gellum og við röltum svoo til hennar Sóleyjar í partý;) var þar í dágóðan tíma og skemmti mér konunglega með ykkur stelpur:haha: fór síðan með Arnrúnu og Helgu (ekki Helgu minni) á rúntinn og svoo heim til hennar Bergþóru þar var smá svona teiti eða hitting hehe;) Var svoo bara að vinna á sunnudeginum og svoo út um kvöldið með Arnrúnu:*Vinna í gær og svoo sótti ég Kristínu Örnu heim til sín:haha: kellingin var meiri að segja að keyra sjálf:) röltum svoo á móti Júlíu og Depli, fórum í smá göngutúr með Depil og svoo heim til Kristínar, síðan var nú bara haldið heim í háttinn...vinna hálf 8 um morguninn daginn eftir=/ 

Planið í kvöld er að fara til Kristínar að panta pizzu:) svoo langt síðan við höfum gert það saman;*

Það eru 9 dagar þangað til Helga kemur heim:haha: shit hvað ég sakna þín Helga mín!;** Veist ekki hvað ég hlakka til að fá þig heim! Sjæsinn! Vona svo innilega að þú lesir þetta og ég fái að heyra aðeins í þér á meðan þú ert úti;*

Tinna, ég, Elva, Siggi Ring, mamma og Siggi Sig á seinasta kvöldinu okkar saman úti, erum á barnum hjá Tinnu:)

 

Bless!


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 01:09:59 / anna

mánudagur

Jæja fólk þá er komið að því..ég er að fara út á fimmtudaginn til Costa de sol og verð þar í 2 heilar vikur! Held það verið bara svolítið gott að komast í burtu í smá tíma, þarf alveg á því að halda takk fyrir og gleðileg jól. Mín er orðin svolítið þreytt á öllu hérna=/ er meiri að segja búin að hugleiða það að flytja til Ólafsfjarðar það væri nú heldur betur skemmtilegt:P hehe neii ég held ég færi nú ekki að gera það skoo:) bara sorry fólk sem vill losna við mig þá losnar það ekki við mig í lengri tíma en 2 vikur. En ég á nú alveg eftir að sakna sumra hérna og þið vitið alveg hverjir þið eruð:haha: ;*

Fór í útilegu um helgina:) og hún var nú bara mjög skemmtilegt! Jaá eða svona að mestu leyti;) æðislegt fólk sem kom til okkar Helgu og skemmtun okkur bara konunglega! Mikið hlegið og mikið grín gert heheh kannski mest nú af mér en það var bara allt í lagi;) Get ekki sagt að ég hafi verið einhver grillmeistari þarna á ferð skoo hehehe! En jaá þessi ferð var bara mjög skemmtileg, við Helga vorum að briller að tjalda þessu allsvaðalega tjaldi og líka góðar að pakka því saman:haha: er stolt af okkur Helga;) Fórum svoo til Grenivíkur að horfa á Lísu keppa:) Brunuðum svoo heim til Akureyrar en þurftum nú að stoppa einu sinni bara á miðjum þjóðveginu eða svona eiginlega því Anna Sif fríkaði smá út:$ vegna einnar flugu sem var btw ógeðsleg! Hahahha bara fyndið skoo:lol: Fengum okkur svoo að borða svoo stökk Helga aðeins út og ég fór á rúntinn með Arnrúnu og það var skoo gaman:D hún er svoo mikið æði;* við á fullu með þarna hassardljósin á hehe:) vorum meiri að segja með svona kósý kvöld í bílnum hahah! Fórum svoo heim til mín að hitta Helgu þegar hún skilaði sér að lokum;) Svoo fóru þær heim til sín og mín fór í háttin.

Vaknaði ekki fyrr en klukkan 13.00 í dag:O..hef ekki sofið svona lengi í marga mánuði! Fór svoo í bakaríið til stelpnanna:) Tóta var að hætta í vinnunni þannig við þurftum nú að kveðja hana með einhverju eftir minnilegu og sprautuðum því á hana rjóma:haha: eða Emma og Alma sáu alfarið um það ég bara horfði á hehehe;) Er svoo búin að vera á fullu að setja í þvottavél hérna heima og svona! Fór til pabba að kveðja hann=/ kallinn er bra að fara að flytja til Egilsstaðar verður fluttur og alles þegar ég kem heim:’( þannig þurfti að kveðja hann. Fór svoo í mat til Ásdísar og Badda:) var nú farin að sakna þeirra þau bara nýkomin heim og ég bara strax að fara. Hitti svoo Helgu og Heiðdísi fórum svoo á rúntinn með Gísley:D skemmti mér vel með þeim:haha: Gaman að keyra með rúðuþurkurnar á fullu, flautandi og með hassardljósin á:haha: eða það fannst mér allavegana! Veit ekki með ykkur stelpur;) Gerðist eitt nú fyndið þegar Gísley var að keyra mig heim, var að snúa bílnum sínum við hérna fyrir utan hjá mér og ég var nú bara að labba inn þá heyri ég allt í einu bara BAMM! Og síðan bara algjör þögn...sný mér við og heyri þá Gísley gjörsamlega springa úr hlátri þá hafði hún keyrt með dekkin á kantsteininn og brá svoo við það að hún drap á bílnum!:lol: Þetta var svoo fyndið að sjá greyið stelpunum urrlast úr hlátri.

En jæja vildi bara koma með smá blogg inná þessa blessuðu síðu svona rétt áður en ég fer út... ætla því bara að kveðja ykkur næ nú ekki að segja bless við ykkur öll;) en jaa bæb elskurnar mínar og farið varlega á meðan ég verð í burtu;*

 

IMG_5591

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 18:01:11 / anna

12. júlí

Sælt veri fólkið! Pannan er mætt á svæðið, tilbúin að blogga eitthvað stórt en svoo þegar hún fer að hugsa djúpt þá er bara eins og það komi ekkert gáfulegt uppúr manni. Jáá það eina sem ég get bloggað um er um vinnuna:) það er bara það eina sem ég geri skoo:S hehe sad but true:P neii bíddu samt ekki sad, það er gaman hjá mér í vinnunni, vinn með æðislegu fólki! Fæ borgað fyrir að skemmta mér hehe:haha: hversu gaman getur það verið hmm?;) bara geðveikt skoo.  

En það sem ég hef verið að gera svona eftir vinnu síðustu daga þá er það að vera með Helgu;* Fimmtudaginn minnir mig að við höfum farið í bíó saman:D hehe kannski kemur þetta ykkur á óvart sem þekkja mig vel en Anna Sif er farin að fara í bíó bara alveg sjálfviljug;) hehe og finnst það bara gaman:) tími til að fagna:P? I think soo...En jaá svoo föstudaginn var ég bara að vinna eins og alla hina dagana í mánuðinum fæ 3 frídaga í júlí:S en money money.  Fór svoo um kvöldið með Höllu í Brynju og svona:) var svoo komin heim þegar Silfá og Kristjana hringja í mig og bjóða mér með sér á rúntinn Silfá sæta búin að fá bílpróf;) Sunna og Helena líka:D svoo var það bara vinna á laugardaginn og um kvöldið var ég bara með henni Helgu minni að dandalsta:) fórum á trampolínið, í Brynju og allskonar gaman. Fór líka svoo á rúntinn með Ásrúnu, Hófý, Sunnu og Gísley;) Sunnudagurinn vinna og svoo bíó og rúntinn með Helgu;) hehe minnir að það hafi verið fylgifiskar með í bíóið:P en bara gaman af því! Hmm...mánudagurinn kemur e-ð á óvart en var þá með Helgu;* en svoo í gær fór ég í mat til Ásdísar og Badda brallaði margt skemmtilegt með Kristjáni eins og til dæmis að fara í *Sigga slag*  og fá öngul í hendina:P hehe Svoo í dag var það bara vinna...er að fara til Höllu og Kristínar í kvöld að borða pizzu og hafa það gott;)

 

Fer út til Costa de sol 3 ágúst:) kannski búin að segja ykkur það en svoo líður ekki langur tími áður en maður er byrjaður í skólanum...verður spennandi að sjá hvernig það allt fer. En later:)

 

Ég, Gísley og smá Sunna:) þessi mynd var tekin á laugardaginn á rúntinum með þeim gellum;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 21:41:32 / anna

Miðvikudagur

Jáhá bara 5 júlí í dag, það er aldeilis skemmtilegt. Uppgvötaði þetta þvílíka í dag í  vinnunni að í gær var 4th of july! Heheh...maður heyrir svoo oft heyrt um þennan dag talaðan í myndunum;) hehe jaá. Líðveldisdagur Bandaríkjanna held ég hehe:haha: get ekki sagt að ég sé 100% á því.  

Ohh gerðist svoo margt skemmtilegt í vinnunni í dag:haha: mikið hlegið skoo í dag! Úff, hló svoo mikið að ég fékk þvílíkan krampa í magann og í bakið ennþá meira fyndið skoo. Arnrún kom í heimsókn til mín J og svoo Lísa:haha: guð hvað ég er búin að sakna þessara manneskju! Var svoo ánægð að sjá hana kom bara til að hitta mig, ennþá meira ánægð skoo. Síðan hringdi Tóta í vinnuna og þóttist vera einhver kona og bara...”Góðan dag er hægt að fá kakó þarna hjá ykkur” ég: “heyrðu jaá við erum með kakó hérna” konan(Tóta) “ getur maður fengið sér kakó og drukkið það þarna?” ég: uhh, (fór að hugsa bara guð hvaðan slappst þú eiginlega, Sólborg eða?) jaá það er hægt að drekka það hérna” konan (Tóta) “ertu alveg viss?” og þá fattaði ég að þetta var Tóta, úff ég var alveg bara guð minn hvað er að þessari konu, langaði næstum að slengja bara á:haha:  sprakk gjörsamlega úr hlátri og hætti eiginlega ekki að hlæja fyrr en nokkra klukkutíma því það kom alltaf e-ð meira fyndið til að hlæja yfir. T.d. það var mjög skrítið fólk inní sal að borða sem hefði alveg getið verið frá Sólborg haha :haha: og ég labba e-ð fram og sé það og bara guð ég verð að passa mig að glápa ekki og hlæja:S svoo var Eygló, Alma og Helga e-ð að tala saman og ég fer til þeirra þá segir Eygló...” Eru þetta frændsystkinin þín Helga?” úfff ég gjörsamlega sprakk úr hlátri:haha: og þá kom Helga: “ha? Ojjj neii!” Fannst það ennþá fyndnara skoo því þær voru að segja hvað Eygló væri vond með að segja þetta en neinei kemur Helga eitthvað ojjj neii;) hehehe...æihh hún er svo æðislega! Elska hana;* og þig líka Alma mín;* Þið stelpur gjörsamlega bara gerið vinnuna æðislega!  Þetta er bara ponsulítið af öllu skemmtilega sem gerist hjá okkur;) mikið hlegið og skemmt sér! Er búin að ákveða að einn daginn tek ég með myndavélina í vinnuna og deili þeim myndum með ykkur;) kannski ég skreiti þá eina pizzuna með broskalli J eins og er búin að fá leyfi til að gera einhverndaginn:D  Jæja Helga og Alma er það ekki bíó á morgun? Ég er nú viss um það skooo;)

Later people

 

 

 

Er það ekki Blúshátíðin í Ólafsfirði málið um helgina:haha:? Það er snilld skoo! elska þessa helgi, Lísa meiri að segja að syngja;) Fólk verður ekki vonsvikið á að fara þanngað eða aldrei hef ég orðið það;)








» 12 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 00:24:33 / anna

Mánudagur

Já núna er skoo sumarið komið skal ég segja ykkur. Búið að vera þetta blíðskapaveður undafarnadaga:) Ég hef nú ekki notið þessa veðurs voðalega mikið, alltaf að vinna inni=/ en þegar ég get þá er skoo hlaupið útí sólina. Var nú í fríi um síðustu helgi *klapp klapp* fór í útilegu með pabba, Ingu og vinafólki okkar:)  Vorum rétt hjá Vaglaskógi í þessu æðislega veðri, maður fékk skoo smá lit eftir þessa ferð. Síðan tók bara vinnan við í dag, en það er í lagi því ég vinn með svoo æðislegu fólki;) þið stelpur gerið þessa daga geðveikt skemmtilega og eftirminnilega...ég elska ykkur;*

Hmmm..frá hverju á ég að segja? Jáá, ég er að fara til Spánar or some í byrjun ágúst:haha: það verður geðveikt stuð er búin að skipuleggja og ákveða slatta sem ég ætla að gera þarna;) Síðan er stelpan bara að fara í MA:) kemur mörgum á óvart að ég hafi valið þennan skóla en jaá ég ætla í hann. Fleiri fréttir já, Kristin átti afmæli á fimmtudaginn fór einnig út á fimmtudaginn til Danmerku en kemur heim á morgun:haha: gaman að fá hana aftur! Silfá átti síðan afmæli á föstudaginn, fór til hennar í partý og svoo bara skemmt sér;) þannig hún fer að fá bílpróf, Helena líka og Sunna komin með bílpróf til lukku með það stelpur;*

Úff er að hlusta á Heaven með Dj Sammy og þetta lag er í minningu um 11. september og það er lítil stelpa sem talar inná þetta og maður þaft bara að halda inni tárunum þetta er svoo sorglegt:cry: mæli með að fólk hlusti á þetta lag og pæli aðeins í hlutunum. Að lífið er ekki sjálfsagt, komið vel fram við fólkið sem þið elskið því það er aldrei að vita nema það verði ekki alltaf til staðar. Veit það er ekki gaman að segja þetta né lesa þetta en svona er þetta bara, því vil ég að fólk verði sátt við allt og alla og elski alla! Hef öðlast nýja sjón á lífinu og met hvert augnarblik og elska alla vini mína!;*(L)

Þessa manneskju dái ég svoo! þú hún sé ekki lengur hérna hjá okkur þá mun ég alltaf elska lögin hennar og hana sjálfa..æihh jaá sorry ég ætla ekki að vera svona niðurdrepandi. Bara pælið í þessu fyrir mig og njótið lífsins:haha:

Elska ykkur öll;*

p.s. er búin að setja inn myndir úr skólaferðalaginu:) eru neðst á síðunni í dálki sem heitir *Skólaferðalagið* endilega kíkkið á þær og kvittið eftir ykkur;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 20:05:56 / anna

Fimmtudagur

Góðan dag!

 

Alltaf nóg að gera hjá kellingunni. Vinnandi eins og vitfirðingur, en reyni síðan að hitta félagana svona annarslagið:) Jáá eins og kannski flestir vita er ég að vinna í Kristjáns Café við hliðina á Bónus;) alltaf gaman að fá skemmtilegt fólk í heimsókn.

Svaka gaman hjá mér í gær og fyrradag:) Ég hringdi í Kristínu á þriðjudaginn og spurði hana hvort hún væri ekki til í að fara í útilegu með mér:haha: en við vorum nú ekki að fara langt, bara gista í trailernum sem var við hliðina á húsinu mínu. Hún tók skoo vel í það og var ákveðið að hún kæmi um 11 leytið til mín því hún var að vinna til 9. Svoo kom Kristín og við fórum við að laga til og gera svona kósý inní trailer, hjóluðum svoo í 10-11 og keyptum okkur smá svona gotterí og morgunmat;) hehe. Komum við hjá Orra Blö í bakaleiðinni og hann tók hjól móður sinnar sem var btw með svona körfu framan á:haha: getið ímyndað ykkur hvernig hann var hehhe! Bara fyndið skoo. Síðan vorum við bara að spjalla og hafa það kósý í útilegu. Eftir að Orri fór misstum við Kristín okkur alveg, tókum gjörsamlega mynd af öllu, verð að deila þeim með ykkur sem fyrst. Fórum svoo að sofa um tíma sem verður ekki talað um:P hehe

Svoo klukkan í daginn eftir/í gær klukkan 14 þurfti ég að drífa mig í vinnuna og hjólaði þangað að vanda:) Mjög skemmtilegur vinnudagur, mikið hlegið hehe:haha: vinn jú með mjög skemmtilegum manneskjum;) Hjólaði síðan heim úr vinnunni og skellti mér í sturtu, borðaði og fór svoo að horfa á fótboltaleik hjá Magna – Völsungi í kvennafótbolta með Ásrúnu og Gísley:)  Hún Lísa var að keppa og stóð sig með prýði stúlkan. Fór svoo á rúntinn með stelpunum og aðeins til Orra (ekki Orra blö:P) Endist nú ekki lengi þar því Americas next top model var að byrja:) Gísley keyrði mig því heim til Kristín og þarf horfðum við saman á þáttinn og síðan líka L word eða ég horfði nú bara á hann:) Kristín var ekki að vilja horfa á þennan þátt! Heilsaði aðeins uppá Önnu Rut frænku því hún var að renna í bæinn þarna um kvöldið þegar ég var á leiðinni heim. Svoo var bara rölt heim og farið að sofa.

Já kemur á óvart að ég var að vinna í dag? Hmm...neibb. Ætla svoo bara í ljós í kvöld og hafa það kósý;) Síðan er það bara Páll Óskar í KA heimilinu á morgun:haha: það verður skoo geðveikt stuð þar! Ég get garenterað það. Er búin snemma að vinna á morgun og ætla í bæinn og svona að dúlla mér fyrir kvöldið:)  

Anna Sif is out








» 13 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 22:01:57 / anna

Mánudagur

Gott kvöld gott fólk:)

Mikið búið að vera að gera hjá mér þessa dagana og vil því biðjast afsökunar á þessu bloggleysi hjá mér, kom heim á fimmtudaginn úr æðislegu skólaferðalagi. Þetta hefði ekki geta verið skemmtilegra eða jú kannski hehe, en samt þetta var geðveikt gaman:haha: Skal segja ykkur smá frá ferðinni í smá atriðum. 

Mánudagur: Fórum til Laugarvatns, vorum þar og gerðum ýmislegt semmtilegt:) 

Þriðjudagur:Lagt á stað til Hverargerðis, síðan til Reykjavíkur, í Bláa lónið, svoo í go-kart:haha: vil bara segja að ég hef skoo ökuhæfileikana í mér:D var alveg að brillera:!: og þá meina ég það hehe. Borðuðum á Pizza Hut! Fengum síðan fría stund um kvöldið, ég fór til Ómars og Kiddu:) svoo fór ég bara uppi Austurbæjarskóla þar sem við gistum.

Miðvikudagur: Morgunmatur á Hótel Loftleiðum, klukkutíma verslunarleiðangur í Kringlunni, ég náði að kaupa mér 2 boli og eina peysu;) gera aðrir betur. Keyrðum til Stykkishólmar, fórum þar í siglingu um Breiðarfjörðinn. Fórum í Bónus að versla:P Ókum til Langaholts sem er sveitagisting og þar gistum við. Var smá kvöldvaka og síðan bara spjallað og rifjað upp góðar minningar.

Fimmtudagur: Keyrðum til Skagafjarðar, þar fór helmingurinn af hópnum í klettasig/klettaklifur og hinn á hestbak. Ég fór nátturlega í klettasig/klettaklifur:lol: jaá skulum bara segja að ég komst upp hehe. En svoo var farið í Rafting:!: Það var bara það skemmtilegasta sem ég gerði í ferðinni. Stukkum að kletti, flutum í ánni, skvettum á hina bátana og skemmtun okkur vel. Ég var nú einu sinni næstum búin að drukkna úr hlátri, vegna smá missheppnuðum hlut sem Fanný gerði og Kristín lenti með í:lol::haha: en ég hefði ekki drukknað því hún Karen brást vel við hehe. Varð meiri að segja smá hrædd um mig krúttið:) Fórum í pottinn á Bakkaflöt og ég var að spjalla við einn Raftinggaruinn:P hehe sem var e-ð útlenskur man ekki alveg hvaðan. Síðan fengum við lambakjöt og héldum heim.

Útskriftin var síðan á föstudaginn. Sofnaði frekar seint á föstudagskvöldinu/nóttina, lenti í símanum við Kareni og við töluðum í 1 og hálf klst:) sofnaði korter yfir 5 rétt eftir að hafa lokið samtalinu við þetta æði;* hehe ég verð nú að viðurkenna að ég datt útaf á pörtum vegna þreytu. Var að vinna á laugardaginn, allan bévítans daginn!  Fór í Brynju í gær með Höllu, Önnu Rut og Lovísu Marý síðan fórum við allar á trampolínið hérna heima:) Sigrún kom til mín, kvaddi hana því hún var að fara í sveitina:( Fór í mat til pabba svo um kvöldið komu Fríður, Unnur Rún og Selma til mín:haha: þar var skoo mikið hlegið og hoppað, fékk stundum svaka kjánahlátur:p Var síðan bara að vinna í dag eins og vanalega=/ en er í fríi á morgun.

 

 

Bless:!:














» 14 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 22:56:08 / anna

15. maí

Góðan daginn. Hvað segja svoo bændur? Ég held það sé kominn tími í smá blogg hérna á þessum bæ, mikið búið að vera að gerast hjá mér síðustu viku:haha: Prófin búin:!: algjört æði skoo hehe. Fór í óvissuferð á miðvikudaginn:D fórum að læra línudans, í Brynju, lónið í Mývatnssveit, á íslenska reðasafnið og það var bara fyndið skoo, fengum okkur síðan að borða á e-u veitingahúsi á Húsavík svoo var haldið heim í körfubolta og fótbolta:) mjög góður endir á góðum degi.


Föstudagur: Fór uppí Kjarnaskóg og þar var mikið stuð á fólki og einnig mér:)
skemmti mér svona konunglega og vona að þið hafið gert það líka;)


Laugardagur: Fór heim til mömmu að horfa á Liverpool taka West Ham í smá lexíu;) hehe þetta var með þeim skemmtilegustu leikjum sem ég bara hef horft á, spennan var skoo þvílík hérna heima:!: Svoo eftir leikinn fór ég í búð að versla því 8 unit stelpurnar voru að koma til mín að grilla:haha: Fanný var aðalgrillarinn en Kristín og Helga Rún voru henni tiltaks;) Sumar af stelpunum voru að missa sig á trampolíninu mínu hehe;) en það var bara gaman skoo. Svo fóru stelpurnar til Loga en ég bara heim í bólið, þurfti að vakna klukkan 9 næsta morgun útaf einhverjum fyrirlestri uppí Hamri. En stelpur takk kærlega fyrir æðislegt kvöld:haha:

Gerrard:) hann er nátturlega bara BESTUR ekkert annað orð fyrir það:haha:

Sunnudagur: Vaknaði klukkan 9 og fór niður í Hamar á þennan fyrirlestur, hann var bara ágætur hehe:P Var búin þar um 13:30 fór þá bara heim til pabba og fór með honum að þrífa og bóna bílinn. Síðan var ég bara að dandalast e-ð allan sunnudaginn:)Mamma og Siggi komu svoo heim frá Hamborg um kvöldið og það var tekið á móti þeim og fært mömmu gjöf í tilefni mæðradagsins;)

Mánudagur: Íþróttadagur í skólanum. Skal bara segja ykkur eitt, Brekkuskóli vann þetta í heildina:haha: ég var í bandý, körfubolta og reipitogi...minn hópur vann allt nema körfuboltann. Reipitogið var bara fyndið skoo, úff að hleypti út svoo mikill reiði sem ég var búin að innbyrgja að ég bara sprakk, mikil öskur og fagnaður hjá mér hehe;) Var mjög gaman að sjá domino fallið hjá Síðuskóla stelpunum:!: haha var síðan bara að koma úr sturtu eftir æfingu:) jaá ég held ég sé byrjuð að æfa aftur fótbolta, en er samt að drepast í hnéinu núna:S vona að þetta lagist við smá kælingu. Kristín kom til mín smá í kvöld:) alltaf gaman að vera með henni:D


Vil minna ykkur á að það eru komnar nýjar myndir úr Óvissuferðinni:haha: alveg funheitar, nýbúin að setja þær inn;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 21:21:55 / anna

Mánudagur

Jamm og jæja. Það er alltof sumt sem ég get sagt ykkur, samræmdu prófin að byrja eins og kannski flestir vita maður sér þetta bara á annarri hverri blogg síðu! og ekki finnst mér það vera nú spennandi umræðuefni því miður:S Skulum bara segja að ég sé búin að vera meðaldugleg að læra hehe:haha: vel orðað.

Hún Sigrún kom til mín í gær og við gistum saman, fjörið fór svona upp og niður hehe...maður var orðinn frekar þreyttur á pörtum en svoo var hressist maður fljótt aftur við! mikið hlegið jaá þetta var geðveikislega skemmtilegt:haha: skemmti mér konunglega:)...skutumst aðeins á rúntinn með Benna og vini hans um kvöldið/nóttina hehe fer eftir því hvað fólk kallar þennan tíma dags:P  Fórum svoo bara heim og seinna meir bara að sofa, váá hvað það samt birtir snemma út:O bara orðið bjart í morgun hálf 6:S jedúddamía:!: Fór svoo að læra í dag eftit að Sigrún var farin, lærði í svona 1 og hálfan klst og fór þá með Margréti og Sigrúnu í Brynju:haha: létum skoo ekki einhverja rigningu stoppa okkur óneihh. Röltum svoo bara heim til mín og stelpurnar stoppuðu í smá tíma en héldu svoo heim, ég átti víst að fara að læra:) hehe en þá komu mamma og Siggi heim og þá var bara matur. Hringdi svoo Benni og bauð mér á rúntinn með sér, Eyþóri og Þóri:)...var mjög skemmtileg ferð þar:D hehe komu skemmtilegir hlutir uppá og skemmtilegir hlutir sagðir einnig:)

Veit ekki hvort ég muni blogga e-ð mikið núna næstu daga, kannski um næstu helgi það kemur bara allt í ljós:)...bless:!:


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Versló!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1652 dögum